Það var gaman að sjá hvað börnin lifðu sig mikið inn í söguna og tónlistina um Dimmalimm. Fimm ára börnin lærðu textann mjög vel. Yngri börnin sýndu alveg sérstaka innlifun og fundu fyrir stemmningunni í tónlistinni, ekki síst þegar svanurinn deyr í lokin.
Myndskeiðið hér að neðan klippt saman úr tveimur mismunandi samverustundum: Annars vegar úr venjulegri samverustund inni á deild þar sem maður tekur vel eftir upplifun barnanna, og hins vegar frá sameiginlegri svanahátíð sem við héldum í íþróttasalnum í lok þemavinnu með svani.
Sjáðu, sjáðu svanur! Skógurinn er að skemmta sér, sko, hann bangsi dansa fer. Svanur á báru! Veröldin blíð, í suðri gala gaukar, grösin spretta og laukar, sæl er sumartíð.
Syngdu, syngdu svanur! Álfar hoppa, einn, tveir, þrír. Öll nú kætast skógardýr. Svanur á báru! Veröldin blíð, í suðri gala gaukar, grösin spretta og laukar, sæl er sumartíð.
Hjúfra, hjúfra svanur, í hálsakotið hjúfra þig. Ég held þú megir kyssa mig. Svanur á báru! Veröldin blíð, í suðri gala gaukar, grösin spretta og laukar, sæl er sumartíð.
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Söngtexti: Atli Már Árnason.
Þetta lag er að finna á disknum: Fagur fiskur í sjó