Notandi
Breitt og fjölbreytt tónlistarstarf í leikskóla

Notandi:Birte

Úr Börn og tónlist

Ég er stofnandi og ritstjóri þessarar vefsíðu. Hafið samband við mig gegnum netfangið birte.harksen@gmail.com.

Ég er dönsk og menntuð sem grunnskólakennari, en hef starfað í leikskóla síðan ég flutti til Íslands árið 2000. Síðustu ár hef ég sérhæft mig í tónlistarstarfi og starfa nú sem tónlistarkennari í tveimur leikskólum: Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi og Lundabóli í Garðabæ.

Skólaárið 2006-2007 fékk ég styrk úr Þróunarsjóði leikskóla til þróunarverkefnisins "Breitt og fjölbreytt tónlistarstarf í leikskóla". Meðal afraksturs þess er þessi vefsíða. Skólaárið 2007-2008 fékk ég framhaldsstyrk úr sama sjóði til að halda verkefninu áfram.

Ef þið skylduð hafa velt því fyrir ykkur hver Baldur Kristinsson er, sem oft er nefndur sem (með-)höfundur eða þýðandi söngtexta o.fl., þá er það maðurinn minn :). Hann setti líka þessa MediaWiki-síðu upp fyrir mig og forritaði viðbætur við kerfið, og leiðréttir þar að auki íslenskuna mína (sem annars væri full af málfræðivillum!)

Flokkar
Leiðakerfi