Hugmyndin að þessum dansi kom upp þegar ég ætlaði að finna leið til að endurnýta plastávexti sem höfðu einu sinni verið á ljósaseríu. Áður en dansinn byrjar velja börnin sér ávöxt. Síðan dansar ein ávaxtategund í einu í miðju hringsins. Þegar kennarinn svo kallar "Ávaxtakarfa" koma öll börnin út á gólf til að dansa. Þetta er endurtekið nokkrum sinnum.

Ávaxtakarfan2

Latin_Playground
Lagið sem við notaðuðum með dansinum heitir "Mardi Gras Mambo" og er að finna á Putumayo disknum "Latin Playground". Geisladiskar frá Putumayo eru til dæmis til sölu á sumum kaffihúsum landsins, en þeir eru skemmtilegar safnplötur með lögum víðs vegar að úr heiminum.