Það virðist vera svo erfitt fyrir leikskólabörn að hætta að nota orðið "kassi" yfir alls konar ferhyrninga. Mér datt í hug að búa til ný erindi við lagið "Ein stutt, ein löng" og það virðist virka mjög vel til að festa þetta í minni. Þegar ég syng það með börnunum nota ég myndir til stuðnings. Ykkur er velkomið að hafa samband við mig til að fá skjal með myndunum, tilbúnum til útprentunar. Myndskeiðið hér að neðan var tekið upp í Skólatröð, sem er ein deilda Urðarhóls.

Ferningur, hús og kassi með mús
DSC04791

Ein stutt, ein löng

Þríhyrningur, þak og taska á bak
DSC04795
(D) Ein stutt, ein löng
(G) Hringur á stöng
(A) og flokkur sem 
spilað' og (D) söng

(D) Ferningur, hús
(G) og kassi með mús
(A) Kassi með mús og
Ferningur,(D) hús

Ein stutt, ein löng… 
Tígull og ás og lykill í lás
DSC04794
(D) þríhyrningur, þak
(G) og taska á bak
(A) Taska á bak
þríhyrningur,(D) þak

Ein stutt, ein löng… 

(D) Tígull og ás
(G) og lykill í lás
(A) Lykill í lás,
tígull og (D) ás

Ein stutt, ein löng… 
Sporaskja, egg og klukka á vegg
DSC04792
(D) Sporaskja, egg
(G) og klukka á vegg
(A) Klukka á vegg og
sporaskja, (D) egg

Ein stutt, ein löng… 

Hugmynd að fleiri erindum:

Hjarta og hönd 
og Andrés Önd

Stjarna og lús 
og Mikki Mús

Prenta út lagið (PDF): EIn stutt - ein löng - lagið.pdf
Lagið er upphaflega danskt og heitir: "En kort, en lang, en trekant, en stang".
Viðlagið á íslensku: óþekktur þýðandi.
Erindi um formin: Birte Harksen, 2015.

Hjarta og hönd og Andrés Önd
DSC04799
Stjarna og lús og Mikki Mús
DSC04800