Þetta lag finnst okkur vera mjög skemmtilegt þessa dagana enda erum við með letidýra-þema á deildinni. Letidýr á hvolfi sjást bæði úti og inni og börnin fá góða æfingu í að klifra og halda sér með "klónum". Ég ákvað að nota þessa breyttu útgáfu á góða, gamla apalaginu til að kenna börnunum um helstu óvini letidýranna úti í náttúrunni. Til að enda lagið samt á glaðlegum nótum kemur í lokin lítill prakkari og kitlar síðasta letidýrið svo að það vakni ;o) Sjá myndskeiðið neðst á síðunni.
Fimm lítil letidýr
…svo hægt og rólega og...
Fimm lítil letidýrhéngu uppi í tré.Sofandi á hvolfi,með klónum héldu sér.
Þá kom hann herra krókódíll
svo hægt og rólega og ... AMM!
Fjögur lítil letidýr héngu…
Þá læddist herra jagúar
svo hægt og rólega og... AMM!
Þrjú lítil letidýr héngu uppi í tré
Þrjú lítil letidýr héngu…
Þá skreið frú kyrkislanga að
svo hægt og rólega og... AMM!
Tvö lítil letidýr héngu…
Þá sveif þar yfir kondórinn
svo hægt og rólega og... AMM!
Eitt lítið letidýrhékk uppi í trésofandi á hvolfimeð klónum hélt það sér
Þá kom þar lítill prakkari
svo hægt og rólega og... kitli-kitli-kitli!