Börnin á deildinni smíðuðu saman stórflotta geit og lærðu um leið fullt af skemmtilegum fróðleik um geitur. Þau gerðu líka nýjan texta við "Ég negli og saga" þar sem fjallað er um geitasmíðina. Þetta er örugglega flottasta geitin á íslandi og hún er svo stór að þrjú börn komast auðveldlega fyrir á henni, eins og sést á mynd hér að neðan.

Áður en börnin byrjuðu að smíða geitina voru þau að ímynda sér hvernig hún yrði og gerðu myndir til að sýna það. Þau gerðu líka litla sögu um geitina sína.

Börnin notuðu svo sannarlega hugmyndaflugið
Geit
Geiturnar urðu skemmtilega ólíkar
mange
Smíðagleðin ræður för
IMG_3005
Feldurinn kominn á. Hann er svo mjúkur
DSC05446___40__1__41__

Geitasmiðurinn

Förum strax upp í sveit
på_geden
  C          Am
Ég negli og saga
  F           C
og smíða mér geit
   G7        C
og fer síðan á henni
G7          C
strax upp í sveit
  C           Am
Og geitin hún borðar
   F           C    
og verður mjög feit
   G7        C
og gefur mér peysu 
    Dm         G7  C
sem mér finnst svo heit

Lag: "Bátasmiðurinn"
Texti: Börn og kennarar á Sjávarhóli

Jóhanna geitakona
Jóhanna

Íslenska geitin

Við börnin skrifuðum bréf til Jóhönnu B. Þorvaldsdóttur, en hún er bóndi á Háafelli og frumkvöðull í verndun íslenska geitastofnsins. Við sögðum henni frá því hvað við höfum lært og gert í tengslum við geitur og þökkuðum henni kærlega fyrir að bjarga íslensku geitinni. Þetta gladdi hana mjög :)