Strútar eru stormerkilegir fuglar og var það mjög gaman að hafa strútaþema hjá okkur. Eins og sjá má á myndinni gerðu börnin meðal annars risastóran strút, sem við tókum með í garðinn til Immu þegar lokahátiðin var. Strútar gefa frá sér skemmtileg hljóð og dansa líka furðulegan dans þar sem þeir leggja hálsinn aftur eftir búknum, breiða út vængina og lyfta þeim upp til skiptis.

Halló_strútur

Hér á síðunni er hægt að sjá tvö myndskeið frá þessum degi. Annað myndskeiðið sýnir skemmtilegan strútaleik, sem Björg fékk hugmyndina að, en hitt sýnir upptöku af laginu "Halló strútur" sem Imma bjó til og sem kennir okkur það að strútar hafa ekki lyktarskyn.

Er krókódíllinn heima?

Strútarnir: "Er krókódíllinn heima?"
Krókódílarnir: "Neeei! Hann er hjá tannlækninum!"
Strútarnir: "Hvað er hann að gera hja tannlækninum?"
Krókódílarnir: "Hann er að brýna beittu tennurnar sínar!"
Strútarnir: "Af hverju er hann að brýna 
             beittu tennurnar sínar?"
Krókódílarnir: "Til að geta bitið hausinn 
             af öllum strútum í Afríku!"
Strútarnir: "Hverjir eru allir strútar í Afríku?"
Krókódílarnir: "Það eruð ÞIÐ!!!!"

Hugmynd og útfærsla: Björg Kristín Ragnarsdóttir

Halló, strútur

Halló, strútur! Halló, strútur!
Sérðu mig? Sérðu mig?
Halló, strútur! Halló, strútur!
Strúturinn: "Ó, já!"

Halló, strútur! Halló, strútur!
Heyrðu mig? Heyrðu mig?
Halló, strútur! Halló, strútur!
Strúturinn: "Ó, já!"

Þú horfir með haukfráum augum 
 á sléttuna hér
Þú heyrir vist líka alltaf
 hvar ég er...!

Halló, strútur! Halló, strútur!
Finndu lykt af mér! Finndu lykt af mér!
Halló, strútur! Halló, strútur!
Halló, STRÚTUR! HÁLLÓ,  STRÚTUR!!!!
Strúturinn: "Ó, nei!"

Lag: ?
Texti: Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir

Sjá líka: Krókódíllinn og strúturinn -- þjóðsaga frá Zambíu á leikuradbokum.is