Hér er samstæðuspil sem byggir á hljóðum fremur en myndum. Maður á semsagt að finna tvö hljóð sem passa saman. Hér á myndinni sést hvernig hægt er að gera þetta með hristum: plastdollum með mismunandi innihaldi. Börnin eiga að heyra út frá hljóðunum sem þær mynda hvernig eigi að para þær saman.
![]() |
Lítið lag er sungið í hvert sinn sem samstæða finnst. (Sjá myndskeið fyrir neðan):
Finndu hljóð sem passa saman,
finndu hljóð sem passa saman!
Veldu tvær,
og hristu þær,
svo hljóðið heyrist nið'rí tær!
(Lag og texti: Birte Harksen)
Meðan þetta er sungið gerum við hreyfingar sem sjást í myndskeiðinu.
Ef um yngri börn (2-3 ára) er að ræða þarf að kynna leikinn betur fyrir þeim. Það þarf að skoða inn í dollurnar áður en við byrjum svo að þau geri sér grein fyrir hvers vegna hljóðin eru mismunandi og geti tengt hljóðið við innihaldið. Í fyrstu skiptin sem leikurinn er leikinn koma þau heldur ekki upp til að velja dollur og hrista sjálf, heldur tekur kennarinn dollur, hristir þær og spyr börnin hvort þær passi saman.
Með eldri börnum má gera þetta svona: Dollunum er raðað upp. Börnin sitja í hring í kringum þær. Allir syngja vísuna í upphafi og hún er endurtekin þegar samstæða finnst.
Svo velur fyrsta barnið (eða tvö börn saman) tvær dollur og hristir þær. Ef þær eiga saman, tekur það báðar og geymir hjá sér, annars eru þær settar aftur á sama stað Svo er vísan sungin aftur og næsta barn reynir fyrir sér, og svo koll af kolli. (Við sleppum þeirri reglu að börnin megi reyna aftur ef þau finna par).
Önnur leið til að gera þetta sést í myndskeiðinu hér á eftir: Kennarinn byrjar að velja dollu, hristir hana, og svo koma börnin upp til að leita að sams konar hljóði. Þegar börnin eru mörg er þessi útgáfa líklega betri en hin.
Myndskeiðið var tekið upp á Lundabóli í Garðabæ, maí 2008. Börnin eru 4-5 ára.
Hugmynd og útfærsla: Birte Harksen