Bjarnaþemað okkar hefur verið einstaklega skemmtilegt og eftirminnilegt. Fyrir utan allt sem við og börnin lærðum um bjarnartegundirnar átta, höfum við dansað bjarnadansa, sungið bjarnalög, lesið bjarnasögur, málað bjarnamyndir og einnig fótspor sem voru fest á gólfið. Börnin gerðu líka bjarnarhelli úr mjólkurkössum og - viti menn! - einn morguninn var risastór ísbjörn fluttur inn. Myndskeiðið var tekið upp í lokastundinni, en þar var hápunkturinn að vera málaður í framan eins og uppáhaldsbjörninn sinn og að borða risastóra hlaupbangsa sem við höfðum búið til í tilefni dagsins.

Ég gerði spjald til að nota með laginu |
Upphaflega var hugmyndin með laginu að börnin myndu læra hvað þessar átta bjarnartegundir heita, en síðan fannst mér líka sniðugt að þau myndu í leiðinni læra svolítið um fæðu þeirra. Margir birnir eru að sjálfsögðu alætur en við ákváðum að velja einkennandi mat fyrir hverja tegund.
Texti
Börnin voru máluð eins og uppáhaldsbirnirnir sínir |
D
Ég vildi að ég væri BRÚNBJÖRN
A
Ég vildi að ég væri brúnbjörn
D
Ég vildi að ég væri brúnbjörn
A D
Brúnbjörn sem borðar LAX
D
Skip, skip, skip to my loo
A
Skip, skip, skip to my loo
D
Skip, skip, skip to my loo
A D
Brúnbjörn sem borðar LAX
Þekkirðu okkur í sundur? |
Ég vildi að ég væri ÍSBJÖRN
Ég vildi að ég væri ísbjörn
Ég vildi að ég væri ísjörn
Ísbjörn sem borðar SELI
Við skoðuðum hvar á hnettinum bjarnartegundirnar eiga heima |
Skip, skip, skip to my loo...
Ég vildi að ég væri PANDABJÖRN
Ég vildi að ég væri pandabjörn
Ég vildi að ég væri pandabjörn
Pandabjörn sem borðar BAMBUS
Skip, skip, skip to my loo...
Ég vildi að ég væri SVARTBJÖRN
Ég vildi að ég væri svartbjörn
Ég vildi að ég væri svartbjörn
Svartbjörn sem borðar BLÁBER
Þessi frábæri ísbjörn laumaðist inn til okkar... |
Skip, skip, skip to my loo...
Ég vildi að ég væri LETIBJÖRN
Ég vildi að ég væri letibjörn
Ég vildi að ég væri letibjörn
Letibjörn sem borðar MAURA
Skip, skip, skip to my loo...
Ég vildi að ég væri SÓLBJÖRN
Ég vildi að ég væri sólbjörn
Ég vildi að ég væri sólbjörn
Sólbjörn sem borðar HUNANG
Skip, skip, skip to my loo...
Ég vildi að ég væri TUNGLBJÖRN
Ég vildi að ég væri tunglbjörn
Ég vildi að ég væri tunglbjörn
Tunglbjörn sem borðar HNETUR
Skip, skip, skip to my loo...
Ég vildi að ég væri GLERAUGNABJÖRN
Ég vildi að ég væri gleraugnabjörn
Ég vildi að ég væri gleraugnabjörn
Gleraugnabjörn sem borðar ÁVEXTI
Skip, skip, skip to my loo...
Letibjörn |
Pandabjörn |
Tunglbjörn/Kragabjörn |
Ísbjörn |
Frægir birnir
Okkar fannst mjög áhugavert að komast að því að Paddington er gleraugnabjörn,og Baloo er letibjörn og Bangsimon er svartbjörn og var til "í alvörunni".
Og svo má ekki gleyma að kóalabjörninn og þvottabjörninn og hlaupbjörninn (eða "Gummy Bear") eru alls ekki birnir :o)
Myndskeið