Í vetur unnu börnin á Skýjahóli alveg frábært verkefni um Kópavog. Í tengslum við verkefnið æfðu þau þetta fallega lag sem var samið af Þóru Marteinsdóttur. Börnin sungu eins og englar fyrir foreldra sína á vorsýningunni og einn kennari á deildinni, Ragnheiður Sara, gerði auk þess hljóðupptökur bæði með hópsöng og einsöng allra elstu barnana. Á myndskeiðinu hér fyrir neðan má sjá börnin á deildinni syngja þrjú erindi fyrir framan stóra Kópavogskortið sem þau höfðu búið til.
Texti
Þar sem grasið græna breiðir
sína slæðu yfir fold;
Þar sem rætur spinna þræði
og hjarta tengist mold.
Þar sem bærinn skartar fögrum
hópi drengja' og fljóða,
Hér á ég heima í voginum góða.
Þegar glaður veifar granni
býður mér að koma inn;
Þegar kossi fylgir kveðja
"velkominn vinur minn";
Þegar kvöldar kemur engill
mér vinarhönd að bjóða,
Þá er ég heima í voginum góða.
Út við Hvamma, Tún og Hjalla
fagran heyri' ég fuglasöng;
út við Hólma, Mel og Brekkur
er gangan aldrei löng.
út við Grundir, Hvarf og Heiðar
lít ég gamla vegaslóða
Hér á ég heima í voginum góða.
Þegar sólin rís við Sali,
vaknar Lind við Lækjarnið
Þegar Fífan fagnar sumri,
fær vetrarkóngur frið
Þegar birtir yfir Borgum
við sólarlagið rjóða
Þá er ég heima í voginum góða.
Nú er fagrir söngvar óma
og sólin bjarta skín;
Nú er tónar blíðir hljóma
ég hugsa hlýtt til þín,
Nú er ástin vefur andann
inn í fagra sveiflu ljóða.
Hér á ég heima í voginum góða.
Lag: Þóra Marteinsdóttir, 2005
Texti: Steinunn Anna Sigurjónsdóttir