Það er svo gaman að vera loksins komin með myndskeið af þessu lagi, sem ég gerði texta við fyrir löngu og er að finna á geisladisknum mínum Maja Maríuhæna og önnur barnalög. Þetta lag hvetur börnin til að lifa sig inn í ljónshlutverkið og þeim finnist það nú ekki leiðinlegt :) Þegar við erum "bara" að syngja lagið og ekki að læðast í alvörunni eins og á myndskeiðinu þá notum við hreyfingar sem passa við textann.
Ljónafjölskylda
![]() |
Am G F E
Við erum ljónafjölskylda,
Am G F E
læðumst yfir sléttuna!
Am G F E
Gættu þín á tönnum okkar og
Am G F E
hvössum klóm, JÁ!
![]() |
Við komum alltaf nær og nær!
Sjáðu okkar beittu klær!
Við hlaupum hratt og tökum rosalegt
stökk, stökk, stökk, WAAH!
Við finnum lykt af bráðinni,
komdu nú, við skulum ná henni!
Við þefum hana uppi, hnusum nú
vel, vel, vel, vel SNIFF!
Og ef við sjáum sebrahest,
við gefum honum engan frest!
Við ráðumst á hann strax og étum hann,
einn – tveir – þrír, NÚ!
Lag: Jørgen Wedege
Texti: Baldur Kristinsson og Birte Harksen