Korpukórinn syngur lag úr ævintýrinu um litlu músina Pílu Pínu

Saknaðarljóð Gínu Mömmu

Pílu pínu platen
Pílu_pínu_platan
Hljótt er nú í húsum inni 
Harmur býr í allra sinni 
Hvar er litla Píla Pína 
Sárt er að missa sína.

Burt hún hvarf og brekkan grætur 
birtist mér í draumi nætur 
Veslings litla Píla Pína 
Sárt er að missa sína.

Músaguð við hættum hlífi 
henni,sé hún enn á lífi 
Græt ég litla Píla Pína 
Sárt er að missa sína.

Rætist óskir hennar heitar 
hún það finni sem hún leitar 
Komdu aftur Píla Pína 
Sárt er að missa sína

Saknaðarljóð Gínu mömmu sungið af Ragnhildi Gísladóttur