Þessi dans er einkum fyrir yngri börnin. Hann þjálfar einbeitingu barnanna og eftirtekt hvað varðar tengsl milli söngtextans og hreyfinganna. Hvert barn fær kreppappírs-borða með tilteknum lit. Síðan syngja allir saman, og þegar kemur að lit viðkomandi hóps, dansa allir sem í honum eru.



Í framhaldi af þessum dansi virkar vel að vera með rólega og afslappandi („regnbogalega“) tónlist þar sem allir fá að dansa rólega með borðana sína um salinn og gera fallegan regnboga.

Regnbogadans

Sjáðu! Regnboginn er kominn

Sjáðu! Regnboginn er kominn

Gulur, rauður, grænn og líka blár
- 
Núna dansa gulir!

Sjáðu! Regnboginn er kominn
  
Sjáðu! Regnboginn er kominn

Gulur, rauður, grænn og líka blár
- 
Núna dansa rauðir!

Sjáðu! Regnboginn er kominn

Sjáðu! Regnboginn er kominn

Gulur, rauður, grænn og líka blár
- 
Núna dansa grænir!

Sjáðu! Regnboginn er kominn

Sjáðu! Regnboginn er kominn

Gulur, rauður, grænn og líka blár

- Núna dansa bláir!

Gulur, rauður, 
grænn, blár

Regnboginn 
er alls staðar!

Lag: Super Simple Songs

Texti: Birte Harksen

Lagið heitir "I see something blue" og er frá SuperSimpleSongs. Það er hægt að kaupa það líka útgáfu án söngs, og það er hún sem er notuð á myndskeiðinu.

Þessi dans er hluti af þróunarverkefninu: "Að læra gegnum dans" sem við Geirþrúður Guðmundsdóttir og Ragnheiður Sara Grímsdóttir unnum með styrk frá Sprotasjóði á skólaárinu 2014-15.