Þennan skemmtilega dans fann ég fyrir tilviljun á vefnum supersimplesongs.com. Þótt lagið sé á ensku er það svo einfalt að börnin læra það strax. Það er gaman að hreyfingunum - og svo eru þau líka stolt af að læra smá ensku. Pinocchio er auðvitað Gosi á íslensku.

Hérna er textinn. Hreyfingarnar sjást á myndskeiðinu hér að ofan þar sem meirihlutann af laginu er að heyra og sjá. Upptakan er frá Heilsuleikskólanum Urðarhóli og var gerð í alþjóðavikunni í október 2008.

Pinocchio heitir Gosi á íslensku
Gosi
Everybody in,
Everybody out,
Everybody turn around,
Everybody shout - HEY!
Everybody ready -
Here we go,
Let's do the Pinocchio!

Þetta er endurtekið, og í hvert sinn er sagt meira af eftirfarandi með viðeigandi hreyfingum - þ.e. í fyrsta sinn á að lyfta hægri handlegg, í annað sinn hægri handlegg og svo vinstri handlegg o.s.frv.:

Right arm / Left arm
Right leg / Left leg
Chin up / Turn around
Sit down!

Lagið er af geisladiski sem hægt er að kaupa á Super Simple Songs vefnum. Það er bæði hægt að hlaða honum niður (sem er ódýrara) og fá hann sendan í pósti.
Birt með leyfi frá Super Simple songs