Í ágúst 2007 sömdum við Baldur Kristinsson þennan söngtexta um Trölla Rölla, sem elskar að dansa og galdra. Börnin hafa gaman af leiknum og biðja oft um að fá að fara í hann. Neðst á síðunni er hægt að sjá vídeó-upptöku af laginu.

Upptaka með 4 ára börnum á Urðarhóli, sep. 2007

Eitt barnanna er Trölli Rölli og stendur í miðjum hringnum með galdrasprota. Allir gera þær hreyfingar sem nefndar eru í laginu og Trölli Rölli ákveður hvað hann vill breyta hinum börnunum í...

Trölli-Rölli.jpg
Trölli-Rölli
Hann Trölli Rölli 
dansar um víðan völl.
Hann sveiflar sprot' 
og galdrar með okkur öll.
Eitt stökk, eitt hopp.
Hann sveigir sín tröllakropp.
Og svo, og svo, 
svo breytumst við öll í ...!

Börnin hreyfa sig eins og dýrin sem þeim hefur verið breytt í. Kennarinn slær e.t.v. á trommu á meðan.

Og er hann hoppar og dansar, 
hoppar og dansar,
hoppa og dansa allir með.
Og er hann hoppar og dansar, 
hoppar og dansar,
hoppum og dönsum við!

// C C / C G7 /
/ G7 G7/ G7 C /
/ C  C / C G7/
/ G7 G7/ G7 C //

// F F / Em Em /
/ Dm Dm / C C /
/ F  F / Em Em /
/ Dm G7/ C C //

Lag: Mexíkósk þjóðlag.
Texti: Birte Harksen og Baldur A. Kristinsson.