Eins og sést af myndskeiðinu er þetta einfaldur og skemmtilegur hreyfileikur við tónlist. Þessi upptaka er úr Lundabóli í Garðabæ. Hugmyndin og tónlistin eru sótt af Super Simple Songs, en þar er líka hægt að finna margar aðrar góðar hugmyndir.

Hægt er að kaupa diska eða mp3-skrár á supersimplesongs.com. We all fall down er að finna á disk nr. 3.
Birt með leyfi frá Super Simple Songs