Þetta er dæmi um lag sem er verður enn skemmtilegra ef maður gefur sér góðan tíma til að segja söguna á bak við lagið og líka nota dót til að auka innlifun og dypka skilning. Eins og sjá má á myndinni hef ég verið svo heppin að finna kött sem er mjög skrautlegur og litríkur. Ég bulla sögu um að ég geti lesið á litunum hans hvernig honum líður. Til dæmis verður hann alltaf gulur í framan þegar hann er svangur (sem hann er auðvitað alltaf). Ég segi frá því sem gerist í einu erindi í einu og í framhaldi er það erindi sungið.

Krúsilíus
Krúsilíus í leikskólanum Vallarseli
Krúsilíus_Vallarsel

Í leikskólanum Vallaseli á Akranesi var þetta lag valið í sambandi við áhugarvert þróunarverkefni á árunum 2007-9, sem hét "Heimspeki og tónlist". Vallarsel lýsir verkefninu svona:

Með því að leggja stund á heimspekivinnu með börnunum - nota opnar spurningar, hvetja börnin til að rannsaka málin, skoða málin frá öllum hliðum þannig að börnin átti sig á margbreytileikanum. Með spurningum heimspekivinnunnar og vangaveltum hennar eykst skilningur barnanna á sjálfum sér og öðrum. Að vinna með heimspeki vekur upp og/eða viðheldur undrun og forvitni barnanna, þannig að þau kynnast nýjum hlutum og hugmyndum.

Lesið meira um þróunaverkefnið hérna.

Krúsilíus

D            G       A7
Kannastu við köttinn minn?
     D            G      A7
Hann klókur er en besta skinn.
         G        A7
Hann er stærri en hestur 
   G         A7
og stærri en hús.
    G         A           D           G    -A7
Já, kötturinn minn heitir krús, krús, krús.
     D    -A7
Krúsilíus
     D
Krúsilíus

Hann er gulur og grænn og blár
Galdraköttur í húð og hár.
Og ég veit hvað hann syngur
og víst er það satt
að Krúsilíus, hann á köflóttan hatt.
Krúsilíus
Krúsilíus

Krúsilíus kynlegur er
og klórar oft í tærnar á mér.
Hann vill aldrei fisk
er með væl og pex
og segist bara vilja súkkulaðikex.
Krúsilíus
Krúsilíus

Og ekki nennir hann að elta mýs
Því alla daga vill hann rjómaís.
hann er alltaf að stækka
en enginn það sér 
Því Krúsilíus býr í kollinum á mér.
Krúsilíus
Krúsilíus

Lag og texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Anna Pálína Árnadóttir

Lagið er að finna á plötunni "Berössuð á tánum" sem er hægt að kaupa hér á Tónlist.is