Korpukórinn undir stjórn Hólmfriðu Jónsdóttur

Stingum af

Það er andvökubjart 
himinn -kvöldsólarskart, 
finnum læk, litla laut, 
tínum grös, sjóðum graut 
finnum læk, litla laut, 
tínum grös, sjóðum graut 

Finnum  göldróttan  hval 
og fyndinn  sel í smá  dal 
lækjarnið, lítinn  foss, 
skeinusár, mömmukoss 
lækjarnið, lítinn foss, 
skeinusár, mömmukoss 

stingum af     
í spegilsléttan fjörð 
stingum af -    
smá fjölskylduhjörð 
senn fjúka barnaár     
upp í vind, út á sjó 
verðmæt gleðitár, 
- elliró, elliró      

hoppum  út í bláinn, 
kveðjum  stress og skjáinn, 
syngjum  lag, spilum  spil, 
þá er  gott að vera  til 
syngjum  lag, spilum  spil, 
þá er gott að vera  til 

tínum skeljar, fjallagrös, 
látum pabba blása úr nös, 
við grjótahól í feluleik, 
á hleðslu lambasteik, 
við grjótahól í feluleik, 
á hleðslu lambasteik, 

stingum af -      
í spegilsléttan fjörð 
stingum af -     
smá fjölskylduhjörð 
senn fjúka barnaár     
upp í vind, út á sjó 
verðmæt gleðitár, 
- elliró, elliró

Lag og texti: Mugison

Myndin hér fyrir ofan sýnir hvernig börnin á leikskólanum Baugi hafa unnið með lagið, línu fyrir línu undir handleiðslu Bergrúnar Ísleifsdóttur. Hún kallar þessa aðferð teiknitúlkun.