Stingum af

Korpukórinn undir stjórn Hólmfríðar Jónsdóttur syngur hér Stingum af eftir Mugison. Neðar á síðunni má sjá hvernig vinna má með textann í laginu gegnum teiknitúlkun.

Stingum af

Það er andvökubjart 
himinn -kvöldsólarskart, 
finnum læk, litla laut, 
tínum grös, sjóðum graut 
finnum læk, litla laut, 
tínum grös, sjóðum graut

Finnum  göldróttan  hval 
og fyndinn sel í smá dal 
lækjarnið, lítinn  foss, 
skeinusár, mömmukoss 
lækjarnið, lítinn foss, 
skeinusár, mömmukoss

stingum af     
í spegilsléttan fjörð 
stingum af -    
smá fjölskylduhjörð 
senn fjúka barnaár     
upp í vind, út á sjó 
verðmæt gleðitár, 
- elliró, elliró

hoppum  út í bláinn, 
kveðjum  stress og skjáinn, 
syngjum  lag, spilum  spil, 
þá er  gott að vera  til 
syngjum  lag, spilum  spil, 
þá er gott að vera  til

tínum skeljar, fjallagrös, 
látum pabba blása úr nös, 
við grjótahól í feluleik, 
á hleðslu lambasteik, 
við grjótahól í feluleik, 
á hleðslu lambasteik,

stingum af -      
í spegilsléttan fjörð 
stingum af -     
smá fjölskylduhjörð 
senn fjúka barnaár     
upp í vind, út á sjó 
verðmæt gleðitár, 
- elliró, elliró

Lag og texti: Mugison

Teiknitúlkun

Myndin hér fyrir ofan sýnir hvernig börnin á leikskólanum Baugi hafa unnið með lagið, línu fyrir línu undir handleiðslu Bergrúnar Ísleifsdóttur. Hún kallar þessa aðferð teiknitúlkun.

Síðast breytt
Síða stofnuð