Mikki frændi

Í sambandi við þema um endurvinnslu notuðum við lagið um Mikka frænda sem finnur ýmislegt nothæft á ruslahaug og setur það í malinn sinn og býr til úr því hljóðfæri. Til að leggja áherslu á endurvinnsluþáttinn gerðum við tvö viðbótarerindi við lagið.

Mikki Frændi

Rétt við ruslabing,
ryðgað dót í kring,
brotið gler og beyglað pjátur.
Mikki frændi minn,
malinn fyllir sinn.
Við það gerist karlinn kátur.

Lífið hljóðlátt aldrei er,
þar sem aldinn Mikki fer.
Gamla fötu fann
og nú hamrar hann,
botninn eins og best hann kann.

Því sem fleygir þú
Það hann notar nú,
endurnýtir vel og bætir.
Ryðgað rusl í bing
reynist þarfaþing
Mjög það Mikka gamla kætir

Lífið hljóðlátt aldrei er,
þar sem aldinn Mikki fer.
Gamla fötu fann
og nú hamrar hann,
botninn eins og best hann kann.

Þennan sælusöng
syngjum dægrin löng
haust og sumar, vor og vetur.
Af Mikka læra má
um Móður Jörð að sjá,
hennar gæta' og gera betur

Lífið hljóðlátt aldrei er,
þar sem aldinn Mikki fer.
Gamla fötu fann 
og nú hamrar hann,
botninn eins og best hann kann.

Danskt þjóðlag: "Fætter Mikkel"
Þýð: Auður Guðjónsdóttir (1. erindi og viðlag)
Viðbót: Baldur Kristinsson (2. og 3. erindi)

Lagið með gítargripum (PDF)

Elstu börnin og endurvinnslu-vélmennið

Skröltormurinn gefur frá sér frábært hljóð

Heimagerð hljóðfæri úr malnum hans Mikka

Myndskeið

Upptakan hér fyrir neðan er frá 2009 og sýnir lokakynninguna á verkefninu þegar við syngjum fyrir hin börnin.

Dúó Stemma

Steef van Oosterhout með hljóðfæri úr hrossakjálka

Steef Van Oosterhout er sannkallaður "Mikki frændi" að því leyti að hann getur spilað á ótrúlegustu hluti og breytt hverju sem er í hljóðfæri. Hann er annar helmingur Dúó Stemma sem hefur komið fram fyrir leikskólabörn um allt land með "hljóðasögu" sína um Fíu og Dúdda dordingul, en hinn helmingurinn er konan hans Herdís Anna Jónsdóttir. Í sýningunni spilar Steef meðal annars á hestakjálka, steina, skeiðar og jógúrtdós...

Steef spilar á alls konar hljóðgjafa

Dúó Stemma

Síðast breytt
Síða stofnuð