Hér er skemmtilegt lag um íslensku tófuna eða heimskautarefinn samið af Maríu Martinez, deildastjóra á leikskólanum Reynisholti. Ég kynntist Maríu á úkúlelenámskeiði fyrir nokkrum árum og heillaðist mjög af henni og af laginu hennar. Ég er mjög ánægð með að lagið er nú komið á Börn og tónlist þar sem fleiri geta fengið innblástur af því. Börnin á deildinni hennar syngja lagið fyrir okkur í myndskeiðinu neðar á síðunni og líka má heyra upptöku af Maríu flytja það og spila á úkúlele.
Heimskautarefurinn minn
Heimskautarefurinn minn,
heimskautarefurinn minn.
Hvar býrð þú, hvar býrð þú?
Þú býrð uppi á fjalli, þú býrð uppi á fjalli,
þú býrð uppi á fjalli, já!
Heimskautarefurinn minn,
heimskautarefurinn minn.
Hvað ertu að borða, hvað ertu að borða?
Þú borðar fisk og þú borðar fugl,
þú borðar fisk og fugl.
Heimskautarefurinn minn,
heimskautarefurinn minn.
Hvernig ert þú litinn, hvernig ert þú á litinn?
Þú ert blár eða hvítur, Þú ert blár eða hvítur,
Þú ert blár eða hvítur, já!
Heimskautarefurinn minn,
heimskautarefurinn minn.
Við erum vinir þínir, við erum vinir þínir,
við erum vinir þínir, já!
María er kennari og líffræðingur. Hún starfar sem deildarstjóri í leikskólanum Reynisholti síðan 2023. Hún leitast við að skapa meðvitund, forvitni og virðingu fyrir náttúrunni í gegnum heildræn verkefni sem sameina áhuga barna og krefjandi viðfangs efni sem styðja við þroska þeirra.
Þetta vor hafa deildirnar mínar unnið að verkefninu Heimskautarefurinn minn.
Við unnum að þessu verkefni í um tvo mánuði. Við töluðum um refi í samveru, lærðum lag og dans, bjuggum til andlitsgrímur, klæddum okkur upp og lékum okkur úti.
Í samverustundum um refinn hlustuðum við líka á hljóð refa í náttúrunni og lögðum áherslu á að virða villt dýr og náttúruna. Við töluðum mikið um kurteisi og vingjarnlega hegðun: að gefa villtum dýrum nægt rými, forðast hávaða og halda heimkynnum þeirra hreinum.
Við ræddum einnig muninn á villtum dýrum og heimilisdýrum og hvernig við megum klappa og gefa heimilisdýrum að éta, en villt dýr finna sér sjálf fæðu og vilja ekki hafa fólk of nálægt.
Myndskeið
Þetta yndislega myndskeið sýnir börnin á leikskólanm Reynishoti í refaleik í skóginum með heimatilbúnar grímur. Síðan syngja þau lagið saman í refakór undir stjórn Maríu.
Hljóðupptökur
Hér má heyra Maríu syngja og spila lagið á úkúlele