Í Vestmannaeyjum er rík hefð fyrir því að bjarga pysjum og koma þeim út á sjó ef þær hafa villst á leiðinni út úr holunum sínum í fyrstu flugferðinni. Þetta er eitthvað sem leikskólabörnin þar vita allt um þótt við sem búum annars staðar á landinu þekkjum minna til þess. Það var ákaflega gaman að fá þetta myndskeið og þennan skemmtilega texta frá Mörtu Jónsdóttur hópstýru á Sóla. Sóli er Hjallastefnuleikskóli og börnin sem eru að syngja eru tveggja til fjögurra ára strákar.
Lundapysjan
Lundapysjan fór af stað
út úr holunni sinni
Hún ætlaði að fara' í bað
en lenti í hendinni minni
(umbarassa)
Fljúgðu pysja, fljúgðu pysja
fljúgðu út á haf.
Fljúgðu pysja, fljúgðu pysja,
en svo fór hún í kaf (blúbb)
Lag: Afi minn og amma mín
Texti: Marta Jónsdóttir
Myndskeið
Pysjuleit
Ágúst og september eru mjög spennandi tímar í Vestmannaeyjum en þá koma lundapysjurnar í bæinn. Þær ætla að fara út á sjó en villast stundum í bæinn og þá þarf að bjarga þeim og hjálpa þeim að komast út á sjó. Börnin fara af stað með foreldrum sínum þegar það er orðið dimmt og lýsa með vasaljósum í öll skúmaskot og leita að pysju. Þegar þau finna pysju er hún sett í pappakassa og daginn eftir er farið með pysjuna niður í fjöru eða á annan sleppistað og henni sleppt út á haf. Oft er þeim varlega kastað upp í loftið út yfir sjóinn svo þær nái að fljúga eða lenda á sjónum og synda burt. Þannig er mörg þúsund pysjum bjargað á nokkurra vikna tímabili á haustin.
Marta segir:
Við finnum stundum pysjur á leikskólalóðinni hjá Sóla og þá tökum við þær inn og skoðum þær. Stundum hafa verið unnin verkefni um lundapysjuna og sagan um litlu Lundapysjuna (eftir Hilmar Högnason) er alltaf lesin á þessum tíma. Sagan segir frá því þegar lundapysja sem skríður úr egginu sínu og flýgur síðar í átt að ljósunum í bænum. Þar reyna börnin að bjarga henni og koma á haf út. Pysjan lendir í ýmsum ævintýrum á þessum tíma.
Pysjan hennar Freyju
Önnur falleg bók sem fjallar um pysjuleit er Pysjan hennar Freyju eftir Colleen Paeff og Lindu Ólafsdóttur. Hún er nýútkomin (2026). Á heimasíðu Forlagsins segir um hana:
Freyja og fjölskylda hennar leggja af stað í björgunarleiðangur seint um kvöld. Þau búa í Vestmannaeyjum ásamt hundrað þúsundum lunda sem koma þangað til að verpa. En stundum villast litlu lundapysjurnar inn í bæinn í stað þess að fara á haf út. Þá hjálpast eyjaskeggjar við að koma þeim öruggum út á sjó. En það er ekki auðvelt verk! Þessa nótt reynir á hugrekki Freyju.
Pysjukast
Það er gaman að segja frá því að fyrir mörgum árum gerðum við leik á Urðarhóli sem snýst um þessa hefð. Það er leikurinn Pysjukast. Það var einmitt dóttir hennar Mörtu, Agnes, sem fékk hugmyndina að honum.