Imma og Birte
Imma_og_Birta

Selló-Stína (Kristín Lárusdóttir) kom í heimsókn til okkar í leikskólann, spilaði fyrir okkur á selló, og síðan kenndi hún börnunum að kveða. Það var mjög eftirminnilegt, og okkur fannst tilvalið að halda upp á þorrann með einhverju þjóðlegu...

Ekkillinn frá Álfahamri

Uppi í háa hamrinum býr huldukona,
það veit enginn Íslendingur
annar en ég, hvað vel hún syngur.
Sélló-Stína (Kristín Lárusdóttir)
Sélló_Stína
Eitt sinn hvarf hann ekkillinn frá Álfahamri,
það var ekki allt með felldu,
eftir því sem sumir héldu.

Leitað var hans út með á og upp við hamra,
en allir höfðu öðru að sinna,
ekkilinn var hvergi að finna.
Huldukonan í hamrinum
Huldukona
Löngu seinna sauðamaður sagðist hafa
heyrt hann glöggt á hljóðri vöku
í hamrinum syngja þessa stöku.

Vísur: Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Lag: Úr Eyjafirði (Jóhann frá Flögu).
Kvæðamannafélagið Iðunn - idunn(hjá)rimur.is

Á myndskeiðinu hér að neðan má sjá og heyra tilraun sem við Imma gerðum til að fá börnin til að "kveða" á Bondaginn. Þetta var nú mest til gamans gert, og Kvæðamannafélagið myndi hugsanlega benda okkur á að það þyrfti að halda lengra hlé fyrir 3. línuna og gera ekki hnykk í endann, en eins og sjá má finnst börnunum það sérstaklega skemmtilegt :-)

Við förum reyndar líka rangt með textann: syngjum "á hamrinum" í stað "í hamrinum".

Þetta kvæði er annars til í annarrí útgáfu þar sem erindið sem við syngjum er það síðasta og ekki það fyrsta.