Ég er fiðrildi

Þetta er frumsamið lag sem er á á geisladisknum mínum, Maja Maríuhæna og önnur barnalög, og má heyra hér á Spotify. Kveikjan að laginu var tréfiðrildi úr óróa sem mér datt í hug að nota í sambandi við fiðrildadans.

Ég er fiðrildi

[C] Opnaðu [Am] augun  
og [Dm] líttu á [G7] mig! 
Ég er [C] fiðril- [Am] di, 
og ég [Dm] flýg kringum [G7] þig!

Ég get [C] flogið svo [Am] hátt 
að varla [Dm] í mig [G7] sér!
Ég get flogið svo lágt 
ég kem við [C] tærnar á þér!

Opnaðu augun 
og líttu á mig!
Ég er fiðrildi, 
og ég flýg kringum þig!

Ég get flogið í hringi 
ég get flogið beint!
Ég flýg allan daginn
bæði snemma og seint!

Opnaðu augun 
og líttu á mig!
Ég er fiðrildi, 
og ég flýg kringum þig!

Ég get flogið um allt 
og líka út í geim!
En mig langar allra helst að
fljúga með þér heim!

Lag: Birte Harksen
Texti: Baldur A. Kristinsson

Fiðrildadansinn

Á deildinni okkar var fiðrildið dýr mánaðarins og lagið var fyrst notað í sambandi við fiðrildadans sem var hluti af þemavinnunni. Hópur barna (4-5 ára) dansaði í kringum kennarann með lítil tréfiðrildi (úr óróa) á meðan hin börnin sungu lagið. Í lok lagsins lentu fiðrildin hjá kennaranum og nýr hópur barna tók við.

Síðast breytt
Síða stofnuð