Birte Harksen

Ég er stofnandi og ritstjóri þessarar vefsíðu. Hafið samband við mig gegnum netfangið birte@harksen.is.

Ég er dönsk og menntuð sem grunnskólakennari, en hef starfað í leikskóla síðan ég flutti til Íslands árið 2000. Síðustu ár hef ég sérhæft mig í tónlistarstarfi og starfaði um árabil sem fagstjóri í tónlist á Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi. Nú (2023) starfa ég á leikskólanum Aðalþingi sem verkefnastjóri.

Skólaárið 2006-2007 fékk ég styrk úr Þróunarsjóði leikskóla til þróunarverkefnisins "Breitt og fjölbreytt tónlistarstarf í leikskóla". Meðal afraksturs þess er þessi vefsíða. Skólaárið 2007-2008 fékk ég framhaldsstyrk úr sama sjóði til að halda verkefninu áfram. Síðan hefur vefsvæðið vaxið ár af ári þótt meginviðfangsefnið sé enn hið sama. Í framhaldi hef ég stofnað sérvefi um önnur verkefni sem ekki tengjast tónlist beint. Þetta eru vefirnir Leikur að bókum og Stafagaldur.

Ef þið skylduð hafa velt því fyrir ykkur hver Baldur Kristinsson er, sem oft er nefndur sem (með)höfundur eða þýðandi söngtexta o.fl., þá er það maðurinn minn :). Hann setti líka þessa vefsíðu upp fyrir mig og forritaði kerfið sem ég nota til að uppfæra hana. Auk þess leiðréttir hann oft íslenskuna mína (sem annars væri full af málfræðivillum!)