Gull og perlur

Ég gersamlega féll fyrir þessum texta sem Hjálmar Freysteinsson gerði við lagið "Vem kan segla". Síðan hann var sunginn á leikskólastjóraþingi á Selfossi (í mars 2009) hefur hann dreifst víða og er notaður mikið, sem er mjög ánægjulegt!

Gull og perlur

Am
Gulli og perlum að safna sér
Dm                  Am
sumir endalaust reyna
     Dm        Am
vita ekki að vináttan er
E7                   Am
verðmætust eðalsteina.

Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina
en viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.

Lag: "Vem kan segla" þjóðlag frá Álandseyjum
Texti: Hjálmar Freysteinsson (Úrvalshagyrðingur, læknir á Akureyri og úr sextíu og sex árgangi MA)

Síðast breytt
Síða stofnuð