Ljón og fílar

Þetta lag er mjög vinsælt hjá yngstu börnunum. Hér á myndunum er það notað með bók sem er með gati í miðjunni svo að börnin geti sjálf leikið dýrið sem sungið erum. Því miður veit ég ekki hver samdi lagið. Það eru 2ja ára börnin á Stjörnuhóli, sem eru að syngja á upptökunni hér fyrir neðan. Des. 2005

Upptakan er alveg frábær og fær mig alltaf til að brosa :o)) Ljon_og_filar.mp3

Ljón og fílar

Ljónin, ljónin, ljónin, ljónin,
ljónin hér og þar
ljónin eru allstaðar!
Tralla-la-la-la,
tralla-la-la-la,
tralla-la-la-la-LA!
(Urra eins og ljón)

Fílar, fílar, fílar, fílar,
fílar hér og þar
ljónin eru allstaðar!
Tralla-la-la-la,
tralla-la-la-la,
tralla-la-la-la-LA!
(Lúðrahljóð eins og fíll)

Náttúrulega er hægt að nota líka önnur dýr.

Hreyfingar

    1. lína: labba í loftinu með höndunum.
    1. lína: benda með vísifingrunum til vinstri ("hér") og til hægri ("þar").
    1. lína: breiða út faðminn
  • 4.-6. lína: Klappa á lærin þegar sungið er: Tralla-la-la o.s.frv.
    1. lína: Segja hljóð dýrsins og e.t.v. gera hreyfingar sem eru viðeigandi fyrir viðkomandi dýr.

Gaman er að nota bókina In the Jungle eftir Benedicte Guettier með börnunum þegar þetta lag er sungið – eins og sést á myndunum. Bókin virðist þó því miður vera uppseld.

Hreyfileikur frá Rúnu í Borganesi

Rúna (Sigrún K. Halldórsdóttir) segir:

"Ég kenndi krökkunum lagið, skipti þeim svo í t.d. fjóra hópa; ljón, fíla, slöngur og apa og lét þau ganga eða skríða hvert í sitt horn á salnum. Í miðjuna lét ég stóra trommu sem er reyndar skreytt með frumskógarmyndum og þegar við sungum um t.d. ljónin þá máttu þau læðast að trommunni og spila þangað til lagið var á enda. Þá ráku þau upp ljónaöskur og fóru heim til sín aftur. Þannig koll af kolli."

Síðast breytt
Síða stofnuð