Svanavatnið

Flestir hafa heyrt um þennan fræga ballett eftir Tchaikovsky, en Svanavatnið er líka frábært ævintýri með vondan galdrakarl sem heitir Rauðskeggur og sem breytir prinsessunni Odette í svan ásamt öllum hirðmeyjunum hennar. En svo verður prins Sigurður ástfanginn í Odette, og dramatískir atburðir gerast...

Svanavatnið var eitt af því sem við unnum með í sambandi við svanaþema á deildinni. Við byrjuðum á sýna þeim ævintýrið með því að setja upp smá brúðuleikrit fyrir þau, eins og sést á myndinni. Börnin voru gifulega upptekin af sögunni og okkur langaði að leyfa þeim að upplifa ballettinn líka. Við fengum ballett-mynddisk lánaðan á bókasafninu og sáum brot úr Svanavatninu og svo fórum við sjálf að æfa nokkur spor. Að lokum héldum við dansleik þar sem við dönsuðum öll við tónlist Tschaikovskys. Sjá myndskeiðið hér fyrir neðan.

Við vorum svo heppin að fá tvo íþróttafræðinema frá HR, þær Írisi og Siggu, í tveggja vikna æfingakennslu einmitt þegar við vorum að fara að æfa ballett. Þær voru frábærar og mjög færar í ballett :o) Þær kenndu okkur ýmis spor og allir fengu að vera með þó að þær ynnu aðallega með 5 ára börnin. Á myndskeiði tvö hér að neðan má sjá smá sýnishorn af því.

Myndskeið

Tónlistin í þessu myndskeiði er "Svanurinn" úr Karnivali Dýranna (eftir Saint Saëns):

Að lokum er hér myndskeið sem sýnir aðra "ballettæfingu" í tengslum við Svanavatnsþemað. Tónlistin er auðvitað úr Svanavatninu eftir Tchaikovsky:

Bók

Ég vil benda á góða barnabók sem gegnum myndskreytingarnar tengir söguna úr Svanavatninu við ballettinn. Það er Swan Lake eftir Rachel Isadora.

Síðast breytt
Síða stofnuð