Táp og fjör - Fósturlandsins freyjur

Í Stubbaseli er hefð fyrir því að börnin syngi Minni karla (Táp og fjör) og Minni kvenna (Fósturlandsins freyjur) á Bóndadaginn, og er varla hægt að hugsa sér þjóðlegri og betri sið en þetta! Þótt strákarnir hafi kannski upphaflega átt að syngja til stelpnanna og öfugt, þá hjálpast börnin bara að með bæði lögin. (Í myndskeiðinu syngja þau reyndar Minni kvenna á undan og Minni karla á eftir - og bæta svo við einu "uppklappslagi"...)

Minni karla

Táp og fjör og frískir menn
finnast hér á landi enn,
þéttir á velli og þéttir í lund,
þrautgóðir á raunastund.
Djúp og blá blíðum hjá
brosa drósum hvarmaljós.
Norðurstranda stuðlaberg
stendur enn á gömlum merg.

Lag: Sænskt þjóðlag
Texti: Grímur Thomsen

Minni kvenna

Fósturlandsins freyja,
fagra Vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís!
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár:
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.

Texti: Matthías Jochumsson
Lag: Johann A. P. Schultz

Myndskeið

Síðast breytt
Síða stofnuð