Ég vildi að ég væri grameðla

Hvern hefur ekki langað til að verða risaeðla? Auðvelt er að búa til risaeðlulag með því að breyta textanum við Skip to my Lou. Eitthvert barnanna ákveður hvaða risaeðlutegund við eigum að syngja um og þegar söngnum er lokið bendir það svo á þann sem á að velja næst. Svo er líka hægt að nota myndir þegar maður velur. Ég var svo heppin að finna gamalt gólfpúsl í Góða Hirðinum þar sem margar risaeðlur voru í heilu lagi.

Eftir að hafa unnið með risaeðluþema í mánuð þekktu börnin á deildinni yfir 15 mismunandir risaeðlur - svo að söngurinn gat dregist á langinn - en samt sungu þau alltaf af jafn miklum áhuga!

6 ára börn á Sjávarhóli eru hér að leika risaeðlur framan við myndir sem þau hafa gert af mismunandi risaeðlutegundum (mars 2009):

Ég vildi að ég væri flugeðla

Ég vildi að ég væri slóeðla

Ég vildi að ég væri grameðla

Ég vildi að ég væri kambeðla

Ég vildi að ég væri grameðla

D
Ég vildi að ég væri grameðla
A
Ég vildi að ég væri grameðla
D
Ég vildi að ég væri grameðla
A                 D
Grameðla með stórar tennur

Risa-stórar risa-eðlur
Risa-stórar risa-eðlur
Risa-stórar risa-eðlur
Uppáhalds dýrin okkar

Ég vildi að ég væri þórseðla
Ég vildi að ég væri þórseðla
Ég vildi að ég væri þórseðla
Þórseðla með langan háls

Risa-stórar risa-eðlur...

Ég vildi að ég væri kambeðla
Ég vildi að ég væri kambeðla
Ég vildi að ég væri kambeðla
Kambeðla með kamb á baki

Risa-stórar risa-eðlur...

Ég vildi að ég væri gaddeðla 
Ég vildi að ég væri gaddeðla 
Ég vildi að ég væri gaddeðla
Gaddeðla með gadda á hala

Risa-stórar risa-eðlur...

Ég vildi að ég væri flugeðla
Ég vildi að ég væri flugeðla
Ég vildi að ég væri flugeðla
Flugeðla með breiða vængi

Risa-stórar risa-eðlur...

o.s.frv.

Hugmynd: Imma og Birte
Hreyfing með laginu: Þegar við syngjum viðlagið yppum við öxlum í takt.

Myndskeið

Hér er lítið sætt myndskeið þar sem er hægt að heyra laglínuna:

Síðast breytt
Síða stofnuð