I am the light (mantra)

Þessi mantra er alveg í uppáhaldi hjá mér. Mér finnst textinn fallegur og hreyfingarnar falla einstaklega vel að honum. Almennt er ég mjög hrifin af því að nota möntrur með börnunum í ýmsu samhengi. Þær skapa bæði ró og innri frið og styrkja samkennd þegar við erum öll að fylgjast að í hreyfingu og söng. Það er athyglisvert að oft finnst mér auðveldara að fá öll börnin til að taka þátt í hreyfingum með mér þegar um möntru er að ræða heldur en önnur lög.

I am the light

I am the light of my soul
I am bountiful
I am beautiful
I am BLISS
I am, I am

Þessi mantra hefur verið sett við ýmsar laglínur. Laglínan sem ég nota kemur frá Gurudass Kaur og þar er reyndar sungið "I am the light of the soul".

Af hugarfrelsi.is:

Lokaðu augunum. Sjáðu fyrir þér ljós í hjarta þínu. Leyfðu ljósinu að skína skært svo aðrir geti notið þess með þér.

Handahreyfingarnar og merking þeirra

Eitt af því sem gerir þessa möntru svo heillandi eru handahreyfingarnar sem fylgja orðunum svo vel. Það þarf að útskýra fyrir börnunum hvað orðin merkja svo að þau tengi merkinguna við hreyfingarnar.

  • I am: Hendur krosslagðar, ein af annarri.
  • The light of my soul: Höndunum haldið saman eins og ljóskeri.
  • Bountiful: Hendur hreyfðar í bylgjuhreyfingu upp og enda saman fyrir ofan höfuð eins og sjá má á myndinni efst. Við útskýrum fyrir börnunum að það að vera bountiful þýðir að vera fullur af orku og getu.
  • Beautiful: Fingurnir færðir niður í flöktkenndri hreyfingu eins og glitrandi ljós á okkur.
  • Bliss: Hendur hreyfðar saman áfram og upp á við og enda með lófana frá okkur (vísifingur saman).
  • I am, I am: Hendurnar teknar til baka í öfugri hreyfingu og svo snúið um sjálfar sig og enda í eins konar skál með lófana upp á við (litlufingur saman).

Þessar hreyfingar sjást auðvitað betur á myndskeiðinu hér að neðan.

Myndskeið

Fyrri hluti myndskeiðsins sýnir börn á Aðalþingi vorið 2023 og sá síðari hóp barna af Urðarhóli á Bókasafni Kópavogs haustið 2022.

Síðast breytt
Síða stofnuð