Hákarlinn í hafinu

Þetta lag er dásamlegt! Börnin elska það og vilja syngja það aftur og aftur, enda er það er fyllt af sterkum myndum og passlega grimmt ;o) Yngsti hópurinn bjó til kafbát til að geta farið ofan í sjóinn og skoðað hákarla, og hefur það verið uppáhaldsleikurinn síðustu vikur. Lagið er eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Það er að finna á plötunni: "Berrössuð á tánum". Á myndskeiðinu fyrir neðan vorum við að halda hákarlahátið og þess vegna eru börnin með svona stóra tennur... ;o)

Blikar á beittar tennur. Blóð um kjaftinn rennur

Hákarlinn í hafdjúpinu rauða...

Ætli hann gleypi stýrimann og stjóra?

Hákarlinn í hafinu

Am
Hákarlinn í hafinu,
                   Dm    E
kemur upp úr kafinu,
Dm                 E
lítur í átt að landi,
Dm                   F      E
langar að skipin strandi.
Dm                            E
Vini á hann voðalega fáa
Dm              E             Am
hákarlinn í hafdjúpinu bláa.

Hákarlinn í hafinu,
kann að vera í kafinu
Leikur hann sér að löngu, 
loðnu og síldargöngu.
Hefur skrápinn skelfilega gráa, 
hákarlinn í hafdjúpinu bláa

Hákarlinn í hafinu,
kvikur er í kafinu.
Blikar á beittar tennur,
blóð um kjaftinn rennur.
Gleðst hann yfir grimmilegum dauða,
hákarlinn í hafdjúpinu rauða.

Hákarlinn í hafinu,
kraftmikill í kafinu.
Bærir þar blakkan ugga,
Bráðum siglir dugga.
Ætli hann gleypi stýrimann og stjóra?
Hákarlinn í hafdjúpinu stóra.

Lag og texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson

Lagið má finna á disknum "Berrössuð á tánum" þar sem Anna Pálína syngur það ásamt mörgum öðrum gullmolum :o)

Leikur að bókum

Við höfum tengt þetta lag við bókina: "The Shark in the Dark" eftir Peter Bently og Ben Cort. Imma islenskaði textann í stil við lagið. Hér er þessu lýst og sýnt hvernig börnin leika söguna.

Myndskeið

Myndskeiðið var tekið upp á Urðarhóli árið 2012.

Síðast breytt
Síða stofnuð