Hvað er í matinn?
Hvað er í matinn?
Hvað er í matinn?
Hér í dag?
Hér í dag?
Góða, góða súpan!
Góða, góða súpan!
Namminamm!
Namminamm!
- breytið textanum eftir því hvað er í matinn
Lag: Meistari Jakob
Þetta litla lag er auðvelt að læra og nota, enda er textinn sunginn við sömu laglínu og "Meistari Jakob" sem allir þekkja. Hópur þriggja ára barna á Aðalþingi er hér að syngja lagið í samverustund rétt fyrir hádegismat og ég fylgdi þeim síðan inn í matstofu þar sem þau völdu og skömtuðu sér mat sjálf á hlaðborðinu og fundu sér sæti til að borða með vinum í ró og næði.
Kristjana Ása er frábær leiðbeinandi á Spóaþingi sem hefur komið á þeirri hefð í barnahópnum að syngja þetta litla lag áður en þau fara inn í matstofu til að borða. Börn og kennarar á Aðalþingi eru mjög heppin að vera með útlærðan kokk í eldhúsinu og maturinn er bæði ljúffengur og girnilegur.
Hvað er í matinn?
Hvað er í matinn?
Hér í dag?
Hér í dag?
Góða, góða súpan!
Góða, góða súpan!
Namminamm!
Namminamm!
Lag: Meistari Jakob
Aðalþing er vel þekkt fyrir brautryðjandi matarmenningu sem mótast hefur í þróunarferli frá árinu 2011 en því er lýst frekar hér á heimasíðu skólans. Matstofan er fallegur og notalegur salur í hjarta skólans sem líkist mest af öllu litlu veitingahúsi með fjölbreyttu úrvali af borðum í mismunandi stærðum og hæðum, t.d. eru nokkur borð svo lág að börnin sitja á kodda á gólfinu.
Mikilvægur hluti af matarmenningunni á Aðalþingi er að börnin stjórna máltíðum sjálf og enginn kennari situr við matarborðið með þeim, þótt þeir séu auðvitað innan handar til að aðstoða. Þegar börnunum er leyft að sitja saman án fullorðinna, þá mynda þau sín eigin samtöl, þau spjalla og hlæja eða sitja hljóð eftir eigin óskum. Börnin velja hvar þau vilja setjast, með hverjum þau vilja borða, hvað þau vilja fá sér og hversu lengi þau vilja vera í matstofunni.
Það er þó takmarkaður fjöldi barna að borða á sama tíma til að tryggja að stemningin og andrúmsloftið verði sem notalegust. Þess vegna myndast ákveðið flæði þar sem fleiri börn komast að þegar það losnar pláss í matstofunni.
Fyrir þau sem hafa áhuga á að lesa meira um matarmenninguna á Aðalþingi vil ég benda á þessa grein sem Kristín Dýrfjörð og Guðrún Alda Harðardóttir skrifuðu vorið 2023. Þetta er ritrýnd grein í nettímaritinu Netlu og heitir Barnstýrðir matmálstímar: „...nú má maður setjast bara einhvers staðar“.
Sláðu inn leitarorð hér að neðan.