Með pabba í búð

Skemmtilegt og glaðlegt lag um eitthvað sem öll börn þekkja til: að fara með foreldri í búð og fá ekki það sem mann langar í. Það er leiðinlegt! En þegar búðarferðin snýst upp í leik verður hún þvert á móti skemmtileg og börnin fá þar að auki að æfa sig í að hlusta eftir upphafshljóðum.

Með pabba í búð

Ég fer með pabba í búð
- það er svo leiðinlegt!
Og ég fæ ekki snúð
- það er svo leiðinlegt!

En pabbi segir: „Nú
máttu hjálpa mér
að finna eitthvað
sem að byrjar á ....“

Lag og texti: Birte Harksen

Texti til prentunar (pdf)
Myndir af matvörum (pdf)

Birte- og Immustund

Þegar við Imma byrjuðum að gera Birte- og Immustundirnar okkar í Covid þá var þetta lag með þeim fyrstu sem við tókum upp. Myndskeiðið hér að neðan endar á eftirminnilegri ferð í Krónuna þar sem við mundum vel eftir að spritta og halda fjarlægð. Ingalind Grétarsdóttir stjórnaði handbrúðunni og lék þannig stelpuna sem var með pabba í búð.

Hvernig lagið varð til

Ég sá þessa dásamlega innkaupakerru í TIGER og bara varð að kaupa hana því að mér datt strax í hug að það hlyti að vera hægt að finna leið til að nota hana í leikskólanum. Á leiðinni heim í bílnum fékk ég hugmynd að lagi og leik og daginn eftir fékk ég síðan hjálp frá tveimur indælum stelpum til að gera upptökur og fara í leikinn. Seinna gerðum við líka upptökur með elstu börnum leikskólans, og þær má líka sjá í myndskeiðinu hér.

Finnum eitthvað sem byrjar á...

Sniðugt að nota töfluna og skrifa upp orðin í leiðinni

GarageBand

Takt-stefið sem ég notaði í upptökurnar

Það er mjög auðvelt að búa til einfalt takt-stef í GarageBand og nota það sem undirspil við þetta lag. GarageBand er forrit sem fylgir iPad og iPhone og er líka til fyrir Makka. Maður stofnar nýtt prójekt og flettir til hliðar þangað til maður kemur að trommunni. Þar velur maður Smartdrums og leikur sér að því að byggja upp taktstefið. (Dragið mismunandi ásláttarhljóðfæri inn í ferninginn og breytið staðsetningunni þangað til þið finnið eitthvað sem ykkur líst á).

Síðast breytt
Síða stofnuð