Vatnseldflaug fljúgðu upp í geim

Að skjóta upp vatnseldflaug er auðvelt og stórskemmtilegt auk þess sem það stuðlar að vísindaáhuga og vísindalæsi. Hér tengi ég það við smá vísu eða þulu sem ég bjó til. Börnin söngla hana og klappa ritmann meðan þau bíða eftir því að eldflaugin þjóti til lofts. Það safnar athyglinni og kitlar ímyndunaraflið, auk þess sem hún getur orðið samræðuefni í framhaldinu þegar við ræðum hugtök eins og loftþrýstingur, kraftur, eldflaug, geimur og fleira.

Það er líka gaman að telja saman 1-2-3 o.s.frv. þegar það er verið að pumpa til að finna út hvað það þarf mörg skipti áður en eldflaugin fer í loftið.

Texti

Vatnseldflaug, vatnseldflaug
fljúgðu upp í geim!
Fljúgðu upp til tunglesins 
og komdu aftur heim - JÁ!

Myndskeið

Vatnseldflaugin sem við notum í myndskeiðinu hér að neðan hef ég fengið hjá Vísindamiðlun.

Eðlisfræði

Vatnseldflaugar eru frábær kveikja að vísindaáhuga og vísindalæsi af því að þær eru bæði skemmtilegar og vekja upp spurningar sem börnin geta sjálf sett fram og reynt að finna svör við á rannsakandi hátt.

Þegar lofti er pumpað í flöskuna eykst þrýstingurinn. Þegar hann verður of mikill losnar tappinn. Vatnið steypist niður á við gegnum stútinn og flaskan þýtur upp.

Spurningar til að íhuga með börnunum og prófa sig áfram með að finna svör við:

  • Getur vatnseldflaugin flogið ef það er ekkert vatn í henni?
  • Getur hún flogið ef það er ekkert loft (þ.e. hún er full af vatni)?
  • Hvaða hlutfall af vatni ætli sé best til að eldflaugin fljúgi sem hæst?
  • Hvað fær hana til að fljúga af stað?
  • Getur hún í alvörunni farið alveg út í geim?

Ritmavinna

Börnin fá vísuna fljótt alveg á heilann þannig að ritminn sem er í henni festist þeim líka mjög fljótt í huga. Það getur verið tilefni til að vinna áfram með ásláttarhljóðfæri og mismunandi ritmastef.

Börn eru mistaktföst og eiga misauðvelt með að læra ritma þannig að það getur hjálpað mörgum þeirra að tengja ritmann við orð eins og vísan er dæmi um.

Góð hlustunaræfing er að spila (eða klappa) hluta ritmans og spyrja svo börnin: "Heyrðuð þið hvort ég var að spila Fljúgðu upp í geim eða Fljúgðu upp til tunglsins?"

Síðast breytt
Síða stofnuð