Arnardansar

Arnardansarnir hér á síðunni er klassískt dæmi um hversu auðvelt það er tengja saman nýjar og gamlar hugmyndir þannig að það passar á skemmtilegan hátt inn í það sem maður er að vinna með á deildinni hverju sinni. Að þessu sinni er það arnarþema. Ég aðlagaði þrjá dansa að þemanu og raðaði þeim í framhaldi hver af öðrum í samræmi við ferlið hjá örnunum. Í fyrsta dansinum verpa ernirnir og liggja á eggjunum, svo klekjast ungarnir út og eiga að læra að fljúga, og að lokum eru þeir orðnir nógu stórir til að yfirgefa hreiðrið.

Börnin höfðu mikinn áhuga á eggjum og hreiðri arnanna, og inni á deild gerðu þau æðislega fínt hreiður úr pappakassa, hænsnaneti, taureimum og smágreinum ásamt tveimur eggjum úr blöðum og gipsi. Þetta hefur skapað frábæran ramma um hlutverkaleik síðustu vikurnar.

Myndskeið

Ég gerði myndskeið sem sýnir dansana þrjá sem lýst er nánar hér að neðan.

Dans 1: Arinn, assan og eggið

Mig langaði að búa til dans þar sem arinn og assan væru að skiptast á að liggja á egginu í hreiðrinu á meðan hinn fuglinn flýgur um (og veiðir sér til matar). Börnin eru saman tvö og tvö og fá "egg" til að passa. Þegar dansinn byrjar er assan á egginu á meðan arinn flýgur um, og síðan skiptast þau á, en þurfa alltaf að finna réttan maka og rétt egg. Dansinn má sjá í myndskeiðinu neðst á síðunni ásamt hinum dönsunum.

Tónlistin sem ég nota undir fylgir námsefninu hennar Elfu Lilju: "Hring eftir hring". Þar er lagið kallað Lady Marian og er á disk 2. Lagið passaði vel vegna þess að það skiptist í A- og B-kafla sem skilgreina hvað börnin eiga að gera: Í A-hlutanum fljúga þau, og í B-hlutanum skipta þau.

Dans 2: Arnar Hókí Pókí

Arnarungarnir fá kennslu í að læra að fljúga. Þetta er tilbrigði við dans sem flestir þekkja vel. Börnunum fannst þetta mjög fyndin tilbreyting. Ég notaði bara hefbundið Hókí Pókí lag sem undirspil en söng nýjan texta yfir á meðan við dönsuðum: Fyrst setjum við hægri vænginn inn og, svo vinstri vænginn, hægri klóna, vinstri klóna, svo gogginn, svo stélið og loks fljúgum við af stað.

Tónlistin sem ég hafði undir var "The Hokey Pokey #1" Greg & Steve af plötunni Music and Movement in the Classroom. Hægt er að hlusta á lagið á YouTube eða á Spotify.

Dans 3: Arnar-stoppdans

Einfaldur stoppdans þar sem börnin fljúga um salinn við fjöruga tónlist. Þegar tónlistin stoppar fara allir ernir aftur í hreiðrin sín, þar sem þau eru tvö og tvö saman. Hægt er að leyfa þeim að fara einfaldlega í það hreiður sem er næst þeim þegar tónlistin stoppar, eða að láta börnin leika arnarhjón sem snúa alltaf aftur í sama hreiður.
Tónlistin sem ég notaði hér er "Opus One" eftir Tommy Dorsey.

Börnin gerðu arnarþrykkmyndir

Að fylgjast með örnunum á netinu

Það gaf okkur öllum mikinn innblástur að fylgjast með skallaarnarhjónum á netinu gegnum vefmyndavél, en þau höfðu einmitt verpt tveimur eggjum í janúar þegar við byrjuðum á þemanu. Við fylgdumst með eggjunum klekjast út og sáum arnarungana stækka dag frá degi, og erum nú að bíða eftir að þeir geti flogið úr hreiðrinu.

Síðast breytt
Síða stofnuð