Hér komum við!

Þessi látbragðsleikur með söngstefi slær í gegn í útivisitinni á Aðalþingi þessa dagana, sérstaklega meðal 4-5 ára barna. Hér erum við að leika hann úti, en það er líka hægt að leika hann inni ef maður hefur langan gang eða rúmgóðan sal til umráða. Hér að neðan lýsi ég ferlinu í leiknum og þið getið skoðað myndskeiðið til frekari glöggvunar.

Leikurinn

Börnunum er skipt í tvo hópa sem stilla sér upp á móti hvor öðrum með góðu bili á milli.

Nú á annar hópurinn að koma sér saman um hvað þau vilja vera, t.d. hestar eða hljóðfæraleikarar eða bakarar. Þetta munu þau sýna með látbragði síðar í leiknum. Hinn hópurinn má auðvitað ekki heyra hvað þau ákveða.

Hópurinn sem valdi sér hlutverk kemur nú þrammandi taktfast og sönglar eins og sjá má á upptökunni:

Hér komum við!
Hér komum við!

Þegar börnin nálgast (um 2-3 metra í burtu) réttir hinn hópurinn hendurnar fram og segir hátt og snjallt: "Stopp!"

Síðan syngja þau saman:

Hér kemst enginn fram hjá mér
nema hann sýni hver hann er!

Þá sýnir fyrri hópurinn með látbragði hvað hann hafði valið að vera í upphafi, og sá síðari á að reyna að giska hvað hann er að sýna.

Þegar síðari hópurinn giskar rétt, hleypur látbragðshópurinn eins hratt og hann getur aftur í upphafsstöðuna, og hinn reynir að "klukka" börnin í honum. Þeir sem nást skipta um lið. Í næstu umferð skipta hóparnir um hlutverk.

Myndskeið

Myndskeiðið var tekið upp á Aðalþingi í nóvember 2023.

Síðast breytt
Síða stofnuð