Draugar undir teppinu

Þetta er eiginlega hinn þekkti leikur "Hver er undir teppinu?" í nýrri og draugalegri útgáfu og með nýju lagi.

Leikurinn

Eitt eða tvö börn fara út úr herberginu meðan eitt eða tvö önnur börn fela sig undir teppi, helst silfurlitu, hvítu eða ljósgráu. Börnin sem fóru út koma aftur inn. Við syngjum lagið meðan draugarnir ganga fram og aftur í miðjum hringnum og segja "ú-hú".

Með börn undir þriggja ára aldri er nóg bara að leyfa börnunum að skiptast á að vera draugar (enginn þarf að fara út og giska). Í lok lagsins tekur maður teppið af þeim sem er draugurinn og segir "Nei, það var bara Pétur!" o.s.frv.

Lagið

Í nóttinni heyrist: "Ú-hú-hú",
í nóttinni heyrist: "Ú-hú-hú",
í nóttinni heyrist: "Ú-hú-hú",
er þetta kannski draugur?

(eða: "eru þetta kannski draugar?" ef fleiri en einn er undir teppi/laki).

Laglína: "Skip to my loo" / "Elska Jesús er svo dásamleg".

Hugmynd: Birte Harksen.

Síðast breytt
Síða stofnuð