Krumminn á skjánum

Ein stelpa á deildinni mætti í leikskólann með ferlega flotta prjónaða krummavængi. Það var því alveg upplagt að hún léki svanga krummann á skjánum á meðan við hin myndum syngja lagið. Imma kenndi okkur laglínuna við þetta gamla þjóðkvæði, en það eru víst líka til önnur lög.

Krumminn á skjánum

Krumminn á skjánum,
kallar hann inn.
Gef mér bita af borði þínu,
bóndi minn!
Bóndi svarar býsna reiður,
burtu farðu, krummi leiður.
Líst mér að þér lítill heiður,
ljótur ertu á tánum,
krumminn á skjánum.

Lag og texti: Íslenskt þjóðlag.

Edda Heiðrún Bachmann gerði mjög flotta útgáfu af laginu sem heyra má hér á Spotify.

Einnig er gaman að skoða allan texta þjóðkvæðisins sem er heil 20 erindi og má m.a. lesa hér á óðfræðivefnum Braga.

Myndskeið

Þetta haust gerðum við líka krummaklippimyndir sem við svo hengdum upp í gluggann hjá okkur, eins og sjá má á þessari mynd:

Við vorum með fullt af krummum á skjánum hjá okkur

Síðast breytt
Síða stofnuð