Ég negli og saga

Á deildinni hjá fjögurra ára börnunum kom upp smíða-æði í vetur sem leiddi til þess að við fórum að syngja lagið um bátasmiðinn og hjálpuðumst að við að smíða bát. Mikill leikur varð til upp úr þessu. Til að fullkoma tilfinninguna að vera úti á sjó tókum við okkur nokkra daga í að breyta hvitum rúllugardínustriga í haf. Það var dásamlegt ferli og gaman að sjá breytingarnar á dúknum þegar blái liturinn smám saman tók yfir.

Bátasmiðurinn

Ég negli og saga og smíða mér bát
og síðan á sjórinn ég sigli með gát.
Og báturinn vaggar og veltist um sæ,
Ég fjörugum fiskum með færinu næ.

Lag: ókunnur
Texti: Birgir Sigurðsson
Pdf með gítargripum

Myndskeið

Myndskeiðið sýnir þetta allt: börnin að smíða bátinn, að mála hafið og að fara á sjórinn til að veiða fisk. Meira að segja hákarl kemur við sögu og sjóræningjar líta við. Börnin syngja að sjálfsögðu líka "Ég negli og saga" og tvær stelpur sýna hreyfingarnar með laginu. Góða skemmtun!

Málörvun

Til gera lagið sjónrænt hef ég safnað saman dóti í kassa sem ég nota til að fara í dýptina með textann og hvað er að gerast í laginu. "Hvað þurfum við til að búa til bát?"" spyr ég og tek það síðan upp úr kassanum og bý til bátinn. Ég nota orðin úr laginu en bæti líka við fleiri orðum eins og til dæmis nagli, sög, mastur, segl, seglbátur, veiðistöng, öngull, sprikla, öldugangur, sjóveikur eða annað eftir því hvernig sagan fer í hvert skipti.

Stundum bulla ég sögu til að tengja lagið saman við önnur lög eins og Fiskinn hennar Stínu eða Lagið um fiskana tvo. Síðan er auðvitað alltaf gaman að giska á hvaða fiskar muni bíta á krókinn í dag og rifja upp hvaða fiska við þekkjum. Og hvers konar fiskur er eiginlega plokkfiskur?

Smíðadót

Börnin smíðuðu úr pappakössum og notuðu Makedo-skrúfur og -verkfæri, sem eru algjör snilld og auðvelt að nota fyrir börn. Fyrir utan skrúfur og skrúfjárn er líka sög úr plasti sem ekki er hægt að meiða sig á. Hér á heimasíðu Make.do er hægt að kynna sér betur hvaða verkfæri eru til.

Síðast breytt
Síða stofnuð