Í larí lei

"VÁ, Tenerife er komið til Íslands!" Kennarar og börn um land allt munu seint gleyma þessum dásamlegu sólardögum í maí 2025. Dagarnir voru nýttir í botn og alls konar skemmtilegheit í boði fyrir börnin. Hér er stutt myndskeið sem lýsir stemmningunni hjá okkur í garðinum á Aðalþingi þar sem við dönsuðum í ýrunni frá vatnsúðaranum í sumarhitanum. Við spiluðum lagið "Í larí lei" alveg "nonstopp" og því tilvalið að setja það inn hér á síðuna. Í myndskeiðinu heyrum við Siggu Beinteins syngja lagið í flutningnum sem allir þekkja og elska, en það er reyndar líka til í annarri útgáfu með Stuðlabandinu.

Í larí lei

[D] Komdu’ að leika, komdu’ að [A] leika.
Komdu’ í fullt af leikjum [D] nú.  
Komdu’ að hoppa, komdu’ að [A] sippa
komdu’ í parís og snú [D] snú

[D] Létt við snúum sippu [A] bandi
síðan hoppum ég og [D] þú.  
Þetta er sko enginn [A] vandi
öll við saman syngjum [D] nú

[D] Í larí, larí, larí, lei, o, o,[A] o,  
Í larí, larí, larí, lei, o, o,[D] o,  
Í larí, larí, larí, lei, o, o,[A] o,  
fram og aftur, upp og niður
aldrei fáum af því [D] nóg.

[D] Allir krakkar eru’ að [A] leika,
ofsalega er gaman [D] nú.  
Allir klappa, allir [A] klappa
og svo hoppum ég og [D] þú.

[D] Áfram allur krakka [A]fansinn
er svo samtaka í [D] dag.
Allir dansa sama  [A] dansinn,
dansa’ og syngja þetta [D] lag.

[D] Í larí, larí, larí, lei, o, o,[A] o,  
Í larí, larí, larí, lei, o, o,[D] o,  
Í larí, larí, larí, lei, o, o,[A] o,  
fram og aftur, upp og niður
aldrei fáum af því [D] nóg.

Lag: "Ilariê" - Cid Guerreiro, Dito, Cehinha
Texti: Ómar Ragnarsson
Flytjandi: Sigríður Beinteinsdóttir

Myndskeið

Síðast breytt
Síða stofnuð