![Sjonni svali og hákarlinn](/resized_images/512x320/c8a651e2db9c3a1a7134e977a185e0b0610c209c.jpg?o=%2Fmynd%2FHvar_er_ugginn.jpg)
Galdrakúlu-stoppdans
Fjör og gaman! Þessi stopp-dans er vinsæll og skemmtilegur og hentar vel í myrkrinu að vetrarlagi eða í rými þar sem hægt er að loka birtuna úti. Ég valdi lagið "September" með Earth, Wind and Fire og finnst það passa mjög vel við. Leikurinn er einfaldur: Nornin ýtir á galdrakúlu og þau börn sem völdu hornið með þeim lit sem hún lendir á verða 1-2-3 og Abrakadabra breytt í froska eða eitthvað annað. Börnin skiptast á að vera norn og eru jafnvel tvö saman í hlutverkinu.
Myndskeið
Myndskeiðið var tekið upp í júni 2023 á Aðalþingi.
Galdrakúlan
Því miður get ég ekki bent á hvar er hægt að kaupa svona galdrakúlu, sem er svolítið glatað. Ég fann mína í Góða hirðinum fyrir tilviljun en ég ákvað að setja samt hugmyndina hér og vonandi getur hún gefið innblástur í svipaðan leik útfærðan aðeins öðruvísi. Til dæmis með því að nornin kasti stórum teningi til að sjá hvaða litur kemur upp. Kanski gæti maður teiknað frosk á hvítu hliðina og ef teningurinn lendir á henni, þá breytast öll börnin í froska.
Hér er PDF-skjal með mynd af galdrakúlu sem hægt er að prenta út á litaðan pappír:
Galdrakúla.pdf
![](/resized_images/512x/e1bdbea79eaa2514211e10035cba00d8b0a41e70.jpg?o=400_3011520_main_or_1_jpg_800x800.jpg.jpeg)
Stór teningur með litum fæst t.d. í ABC skólavörum
![](/resized_images/512x/e51206e9b37193b26c94e25901fe12fc9053e1a3.jpg?o=hand-drawn-flat-design-frog-outline_23-2149261303.jpg.jpeg)
Hægt er að líma eða teikna frosk á hvítu hliðina